Jæja. Þá er enn eitt árið gengið í garð. 2008. 2 0 0 8!
Þetta nýja ár verður spes. Lára og Heiðrún munu yfirgefa okkur fyrri hluta árs, sem og Katla eins og venjulega. En á móti kemur að ósk sneri aftur ooog ég og valgerður og anna verðum hér...allaveganna fyrri hlutann...hef heyrt því fleygt að sumir ætli að fara út í skóla í haust. en það er nú langt í það.
En svona smá summary, eða samantekt réttara sagt fyrir árið 2007.
Janúar. Anna byrjaði árið mjög skemmtilega á Broadway, eins og við fengum að heyra frá Láru í pitsu hjá Kötlu... Katla fór auðvitað aftur til BNA og svo slasaðist Punto alverlega og lá í ruslinu í margar vikur. En janúar var ekki alslæmur því árshátíð HK var haldin með glæsibrag í Dagranesi. Sálin var samt ekki að gera sig.
Febrúar var fremur tíðindalaus. Katla fór víst til California. E-ð að stuðast. piger á íslandi lágu í dvala.
Mars einnig frekar dull..nei djók! ósk bauð HK/Víkings gellum í sumarbústaðinn sinn í tilefni 19 ára afmælis síns! þar sem anna var/er ekki lengur í HK/Víkingi og Lára ekki komin aftur og Katla í útlöndum og Heiðrún að gera ritgerð og kela við kæró sem var busi eða e-ð þá vorum það bara ég ósk og valgerður sem skemmtum okkur konunglega með hinum gellunum okkar.
Apríl apríl var frábær mánuður að venju og margt skemmtilegt í gangi. HK/Víkingur fór í mjög skemmtilega "æfingaferð" til Kaupmannahafnar þar sem margt skemmtilegt var brallað. Anna Garðars nefbrotnaði á Spáni og var dökkhærð um tíma. Lára fór á galakvöld. einn piger pítsu hittingur var og ég átti 20 ára afmæli og hélt uppá það hérna heima. einnig var fóbóferð (hlaup) á selfossi og heiðrún bauð í veislu. ósk gat ekki gist í félagsheimilinu með silfurskottunum því hún fékk heilahristing í einhverjum leik stuttu fyrr.
Maí góður mánuður. Lára byrjaði aftur í HK/Víking (kannski var það í apríl samt) og ekkert nema gott um það. Valgerður varð 19 ára og Anna líka! Katla kom svo aftur heim og Lára varð stúdent frá Verzlunarskólanum
íslandsmótið hófst og allir byrjuðu í sumarvinnunum sínum..lára fór í útskriftarferð
Júní ég man ekki neitt sérstakt frá júní. En þetta var pottþétt: fótbolti og 17.júní! mögulega fór einhver okkar til útlanda.
Júlí sumarbústðarferð Piger.
mjög skemmtileg. anna kom samt ekki því hún var e-ð að landsliðast
Lára varð 20 ára og hélt þetta fína partý. hún fór svo til spánar en ósk tilkynnti einmitt að hún væri að fara að flytja þangað um veturinn..Heiðrún og Valgerður voru svo innlimaðar í Piger. (eigum eftir að framkvæma athöfnina stelpur...!)
Ágúst Katla fór til BNA og ósk til spánar. ég byrjaði í HÍ og Lára í Öskjuhlíðarskóla og Vesturhlíð.
September HK/Víkingur komst uppí úrvalsdeild og varð íslandsmeistari í 1.deild!
anna varð líka íslandsmeistari. en svo var lokahóf og fullt af partýum og annarri ölvun.
Október Katla og Heiðrún áttu afmæli og mikil gleði ríkti. HK og KSÍ lokahóf. man ekki...örugglega pítsukvöld í boði Láru haf. Anna fór í evrópumót.
Nóvember hmmm...ekkert mikið í gangi. Lára fór til boston og prófastress byrjaði...
Desember Einn góður mánuður! Katla kom heim og Ósk kom heim og fer ekkert aftur. Piger hittingur var heima hjá Önnu G og Heiðrún varð stúdent frá FSU og svo voru jól og mikil gleði 
EN já dúllurnar mínar. þó svo að þetta ár hafi verið fínt þá má gera enn betur á þessu ári. ég bíð eftir 3 stúdentsveislum, heimkomupartýum, úrvalsdeild, tvítugsafmælum og fleiru og fleiru skemmtilegu.